Reykjanes hjúkkur

hjúkkur tala út

20.10.2009 23:07:08 / hjukka

Myndbandið

Hæ skvísur.

Þá er myndbandið okkar komið á youtube sem við gerðum fyrir partýið.
Maður verður bara að reyna að slá í gegn á öðrum vettvangi fyrst maður er að missa vinnuna 8)

http://www.youtube.com/watch?v=QrxyN8Er8MM

Ástarkveðjur
Barbara, Elín Anna, Bryndís og Gerður.
:p

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2009 13:49:49 / hjukka

Hjúkkuhittingur :)

Jæja hjúkkur, þá er komið að því :) Hjúkkuhittingur verður föstudaginn 9. okt. kl. 20.30 í Keflavík. Allar að taka daginn frá og skipta vöktum ef þarf, nægur tími til þess. Látið þetta ganga til þeirra sem ekki hafa facebook :)
Fylgjast með á blogginu okkar.

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2009 14:35:41 / hjukka

Til hamingju!

Til hamingju kæru bekkjarsystur með að vera búnar með skólann :) Mikið voruð þið allar glæsilegar í gær! Ég er svo stolt af því að hafa verið hluti af þessum hóp! Það er ótrúlega góð tilfinning að vera búin með námið þó svo að það örli á einhverjum trega að eiga ekki eftir að keyra til Keflavíkur eða fara til Akureyrar í skólann! 

Njótið nú lífsins og sjáumst vonandi allar 17. júní :) 

Bryndís. 

» 9 hafa sagt sína skoðun

12.05.2009 18:04:57 / hjukka

Útskriftin okkar

Það er smá breyting á varðandi ræðuhöld á útskriftinni okkar.

Búið var að stinga upp á Ester og hún var til í það. Nú er það þannig að MSS er ekki allskostar sátt við það þó svo það sé ekki persónulegt (þær hafa greinilega hvorki heyrt né séð Ester:)) en þær fara fram á að það sé í höndum Suðurnesjabúa að flytja þessi orð. Ætla ekki að tjá mína skoðun á því hér en allavega þá er staðan aftur orðin laus og vil ég stinga upp á Öddu sem er búin að vera "allt múlig mann" hjá okkur öll þessi ár ( þið sjáið að ég er farin að æfa dönskuna fyrir Köben;) og hún er tilbúin að  taka það að sér.
Endilega tjáið ykkur svo hægt sé að ganga frá þessu, það líður óðum að deginum mikla sem við getum ekki beðið eftir.

Kv. Hafdís

» 9 hafa sagt sína skoðun

06.05.2009 00:10:29 / hjukka

Útskrift

Sælar stúlkur
Ingibjörg var að senda póst og segir
að nú sé komin tími til að finna fulltrúa til að flytja stutta ræðu á útskriftardaginn okkar.

er einhver sem býður sig fram eða með einhverjar tillögur???? síðasta verkefnið verður bara gaman að semja einhvað skemmtilegt (ég býð mig samt ekki fram):d
endilega komið með einhverjar tillögur svo hægt sé að senda til Ingibjargar í MSS.

kveðja
Magga


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 20:26:59 / hjukka

Skilaboð frá Evu Mjöll, allar að vera duglegar að svara

Fyrsta hugmynd að nælu

Jæja elskurnar...

fékk senda frá systur minni í gær fyrstu hugmynd að nælu sem hún vildi bera undir okkur og endilega kommentið hvernig ykkur lýst á. Hér kemur frekar óskýr mynd sem er heldur ekki í réttum hlutföllum en þið getið séð hana betur undir "myndasöfn" hér á vinstri spássíu.


hér erum tvær útfærslur af sömu hugmyndinni. Hugmyndin hér að baki er sú að um er að ræða hálft hjarta umhverfis hjúkkuna sem stendur á hlið. (hugur - hjarta - hönd) Á vinstri myndinni er hún með hendur út (hugur, hjarta, hönd) en ekki á hægri myndinni. Höfuð (hugur - hjarta -hönd) hjúkkunar og hnútur í hári mynda síðan '09 eða útskriftarárið okkar. Við megum ráða stærðinni á nælunni og hver og ein hvort hún vill silfur, gull eða gullhúðaða nælu. Hugmyndin var að búkur hjúkkunar væri kúptur og höfuð hennar einnig úr silfri/gulli. umhverfis höfuðið (núllið) væri síðan gull/silfur snúra til að ítreka núllið og nían og hálf hjartað yrðu jafnframt úr gull/silfur snúru.

endilega tjáið ykkur hvernig ykkur lýst á. Hugmyndin að baki þessu var sú að hér væri um að ræða nælu sem hefði eitthvað táknrænt gildi en væri samt ekki mjög dæmigerð, t.d. með augljósu '09 merki.

varðandi fjarnemana þá sagðist systir mín mjög líklega ráða við að gera fleirri nælur en bara fyrir okkur staðarnema svo að öllum líkindum er þeim velkomið að vera með. Ætlar að svara mér endanlega með það á morgunn. Væri gaman að hafa þær einnig með í þessu - hafi þær áhuga

hlakka til að heyra frá ykkur,
kv Eva semeraðdeyjahúngeturekkibeðiðeftiraðútskrifast!

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2009 23:24:46 / hjukka

Elsku bestustu bestu :)


Elsku hjúkkulingarnir mínir
Gleðilega Páska
.....njótum þeirra í botn þó við séum með BS rannsóknina hangandi yfir okkur



....kveðja frá Þóru sem ætlar í bústað 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.03.2009 14:46:14 / hjukka

Út að borða fyrir leikhús

Margir veitingarstaðir eru að bjóða upp á leihúsmatseðil. Spurning hvort við eigum ekki að skella okkur eitthvað áður en sýning byrjar.

Greifinn býður upp á 10% afslátt af öllu ef leikhúsmiði er sýndur.

La vita bella býður upp á forrétt og aðalrétt á 3000 - 4000kr ekki búnir að ákveða hvað verður í boði, en þeir eru skemmtilega staðsettir nálægt leikhúsinu.

Rub 23 þriggja rétta máltíð á 5400 kr.

Sértilboð óskilgreind á Strikinu fyrir leikhúsgesti.

Endilega tjáið ykkur.

Kv. Hafdís

» 9 hafa sagt sína skoðun

13.03.2009 11:33:42 / hjukka

Útskriftaferð

Sælar stelpur!!
Við ætlum í útskriftaferð til Kaupmannahafnar 5.-9. júní. Við þrjár erum þegar búnar að panta okkur ferð með Iceland Express kl 7.00 þann 5. júní og heim kl. 21.15 þann 9. júní.
Við viljum endilega hafa sem flesta með, þannig að endilega kýla á það og panta sér far.
Hægt er að haga gistingu á ýmsa vegu, panta hótel eða sameinast í íbúð(ir).:$

Líst ykkur ekki vel á??:lol:

Kveðja
Adda, Ester og Hafdís :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 15:55:32 / hjukka

Greiða þarf leikhúsmiðann á næstu tveimur dögum

Ég var að hringja norður til að staðfesta miðana og fékk þá þær upplýsingar að það þarf hver fyrir sig að hringja inn greiðslu á næstu tveimur dögum vegna þess að miðarnir renna út eins og heitar lummur svo þær vilja ekki geyma lengur.

Kv. Hafdís

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 13:09:51 / hjukka

Leikhúsferð á Akureyri

Hæ stelpur mínar, vona að allar séu búnar að jafna sig eftir helgina.
Það hefur komið upp sú hugmynd að fara á "fúla á móti" á Akureyri svo hægt sé að halda áfram að hlægja og hafa það skemmtilegt. Hvað segið þið um það???????
Það verður sýning fimmtudagskvöldið 26/3 kl. 20.:lol:

Kv. Hafdís

» 18 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 11:21:48 / hjukka

Ten Reasons to Become a Nurse

1. To prove once and for all that you do have a strong stomach.

2. You have an overwhelming urge to humiliate doctors ... or marry them.

3. To prove to everyone that an "A" in high school chemistry does mean something, after all.

4. White is your color.

5. You blew your chance to become a nun / priest ... at age fourteen!

6. You're a natural-born "night person."

7. You still love to "assist" when playing doctor.

8. You went to visit a friend in the hospital ... and never left.

9. You flunked out of ballet school.

10. You couldn't get an acting role on ER, so you opted for the real thing.
 

                                         -N. Schroeder, RN

              Bestu kveðjur Barbara
              og takk fyrir frábært kvöld
              á Salatbarnum :d


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2009 15:01:12 / hjukka

Matseðill frá Ingvari á Salatbarnum

Salatbarinn, 28. febrúar 2009.
20 hjúkkur
Dúkuð borð, hnífapör, glös (fyrir bjór, rautt, hvítt, longdrinks)
Sprautur, nálar, hjúkkubúningar (Tantra), gerfiblóð, hjörtu, lifur, nýru, magi úr kú (Sláturfélag Suðurlands) og svínsfóstur.

Veitingar:
Smáréttahlaðborð.
Tapas með serranóskinku
Tapas með mozzarella og tómötum
Reyktur lax í tortillas
Djúpsteiktar rækjur
Andarbringa Orange
Grísalund Satay
Lambakótilettur Béarnaise
Pannacotta
Kjúklingapinnar BBQ
Innbakaður lax með gráðosti og spínati
Fylltar vatnsdeigsbollur
Shushi
Risarækja Sweet chilli
Djúpsteiktar ostastangir
Súkkulaðimouse
Jarðaber

Verð per mann: 2000 krónur ( ein greiðir í blíðu) ;)
Kv. Gvari Salat. :lol:

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 19:18:38 / hjukka

Partý

Sælar stúlkur.
Senn líður að partýi og planið er að halda það á Salatbarnum þar sem verða góðar veitingar á staðnum, gos og kaffi og jafnvel karokí :haha:
Öllum er heimilt að hafa meðferðis drykk þann sem hefur hreynan vínanda yfir 2,25% af rúmmáli vökvans.;)
Hver lokaverkefnishópur kemur svo með eitt skemmtilegt atriði. Má vera hvað sem er t.d. söngur, brandarar, töfrabrögð, samkvæmisleikir, frumsaminn dans eða þrautir.:lol:

þannig er mál með vexti að Eir ætlar að gefa okkur 25. 000.- kr í styrk.
Þann styrk er annað hvort hægt að nota til að
A) Borga fyrir matinn og einhverjir bjóða sig fram sem bílstjórar eða
B) Borga fyrir rútu frá Keflavík og til baka.

Endilega segið ykkar skoðun á málinu og skráið ykkur hér svo það sé hægt að sjá lauslega hvað margir verða í mat.
Bestu kveðjur Partýskvísurnar
Barb, Brynd, Elí og Gerð.

» 18 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 20:16:31 / hjukka

Partý 28.febrúar

Hæ stelpur.

Nú er komið að því  :haha:
Þann 28. febrúar verður haldið bekkjarpartý fyrir okkur fjarnemaskvísur.
Allir að taka daginn frá, algjört bann að skrópa, engar afsakanir teknar gildar.
Það verður stuð, stuð og meira stuð :lol:
Ýtarlegri lýsing kemur innan skamms.

Partýskvísurnar.

» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
HOUSE - OFFICIAL WEBCITE